21 nóvember 2009
Jól í búðum
Það eru komnar fallegar skreytingar í mörgum stórmörkuðum. En þar er allt morandi í eftirlitsmönnum sem banna allar myndatökur. Ég tel mig vera löghlýðinn þegn sem fylgir öllum reglum í þjóðfélaginu, og vona þess vegna að mér verði fyrirgefið þó ég brjóti þessar reglur. Ég er svo djörf að ég laumast stundum til að taka upp myndavélina og smella af fallegum jólatrjám sem ég sé. Það er kosturinn við þessar litlu myndavélar að það er auðvelt að fela þær í hendi sér og vonast til að ná mynd af því sem gleður augað.

18 nóvember 2009
Sólarupprás og sólarlag
Það er svo fallegt í Austurkoti, hvort sem það er við sólaruppkomu

eða sólarlag.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri
Ég er búin að setja inn á Youtube, stuttmyndir frá afmælinu sem við fórum í á sunnudaginn og af vinunum smáu í Austurkoti. Slóðin er til vinstri á síðunni.
eða sólarlag.
Ég er búin að setja inn á Youtube, stuttmyndir frá afmælinu sem við fórum í á sunnudaginn og af vinunum smáu í Austurkoti. Slóðin er til vinstri á síðunni.
16 nóvember 2009
Nýtt útlit
Ég sé á teljaranum hérna til hliðar að það eru margar heimsóknir á hverjum degi, svo það er best að setja eitthvað inn svo þið fáið eitthvað fyrir ómakið. Ég þakka ykkur öllum fyrir innlitið og góðar kveðjur.
Ég er búin að horfa á marga þætti af "Nýtt útlit" og sjá að það er ekki sama hvernig maður klæðir sig eða hvernig hárgreiðslan er. Eftir að sjá breytingarnar á konum á mínum aldri, sama hvort þær voru með nokkur aukakíló eða ekki, ákvað ég að prófa að fara í tískuföt sem ég var alveg viss um að klæddu mig ekki. Ég væri of feit, of gömul og ætti ekki að hugsa um að klæða mig svona. Fyrst fór ég í klippingu og blástur. Ég ætla að gerast svo djörf að setja inn myndir sem ég tók sjálf, þið sjáið fjarstýringuna í hendinni á mér.
Hér er ég komin í hnéhá stígvel, fyrst sá ég bara stígvél með pinnahælum en þegar ég sá þessi, var ég ekki lengi að skella mér á þau. Enda voru þau líka á góðu verði.

Ég nota svartar buxur við þetta en langaði bara að sýna ykkur leggings sem kosta ekki brot af því sem þær kosta á Íslandi. Hægt að fá þykkar og þunnar.
Nú er ég farin að hljóma eins og auglýsing fyrir fatabúð svo það er best að ég hætti.
Ég er búin að horfa á marga þætti af "Nýtt útlit" og sjá að það er ekki sama hvernig maður klæðir sig eða hvernig hárgreiðslan er. Eftir að sjá breytingarnar á konum á mínum aldri, sama hvort þær voru með nokkur aukakíló eða ekki, ákvað ég að prófa að fara í tískuföt sem ég var alveg viss um að klæddu mig ekki. Ég væri of feit, of gömul og ætti ekki að hugsa um að klæða mig svona. Fyrst fór ég í klippingu og blástur. Ég ætla að gerast svo djörf að setja inn myndir sem ég tók sjálf, þið sjáið fjarstýringuna í hendinni á mér.
Hér er ég komin í hnéhá stígvel, fyrst sá ég bara stígvél með pinnahælum en þegar ég sá þessi, var ég ekki lengi að skella mér á þau. Enda voru þau líka á góðu verði.Nú er ég farin að hljóma eins og auglýsing fyrir fatabúð svo það er best að ég hætti.
Subscribe to:
Posts (Atom)
